Lítil lóð
Fyrir minni grasflatir og einfaldari lóðir.
Hafa samband
Sláttuþjónusta á Stöðvarfirði
Sumarið verður geggjað og garðurinn þinn líka.
Úlfar skoðar lóðina með viðskiptavini, metur umfangið og finnur tíma sem hentar.
Fyrir minni grasflatir og einfaldari lóðir.
Aðeins stærri lóðir eða erfiðari sláttur.
Fyrir stærri garða og meiri slátt.
Sendu skilaboð í Messenger, SMS eða email. Úlfar svarar með næstu lausu dagsetningum og metur verð áður en verk er staðfest.
Þegar haft er samband mætir Úlfar á staðinn, skoðar lóðina með viðskiptavini, metur umfangið og finnur lausa dagsetningu. Þegar báðir eru sammála er gerður einfaldur samningur.
Hægt er að bóka með Messenger, SMS, símtali eða emaili.
Við notum rafmagnstæki í sláttinn. Þau eru viðhaldsminni og hljóðlátari en bensíntæki.
Eftir slátt er grasinu rakað saman og það fjarlægt.
Lóðarmörk er lítið verkefni með skýrt markmið: fagleg vinnubrögð og góð þjónusta. Sérstaklega hugsað fyrir þá sem hafa minni tök á því að sinna slætti - og náttúrulega fyrir þá sem bara nenna því ekki :)
Lóðarmörk er mögulegt vegna styrks frá Sterkum Stöðvarfirði og Byggðastofnun. Stuðningurinn hjálpar ungum heimamanni að koma nytsamlegri þjónustu af stað í bænum.
*Verð og tímasetning fara eftir lóð, aðgengi og aðstæðum. Það er skoðað með viðskiptavini áður en samningur er gerður.